Femme d´or er framleiðslumerki okkar á samfellum sem forma líkamann og skerpa útlínur. Þetta er hágæða vara þar sem hönnuðir og framleiðandi hafa að baki margra ára reynslu.
Samfellurnar eru þétt ofnar úr 84% næloni, og 16% teygjuefni.
Þegar klæðst er samfellunni veitir hún þétt og jafnt aðhald sem minnkar mittismál um allt að 3-6 cm og leiðir jafnframt til betri réttstöðu líkamans. Með reglulegri notkun minnkar mittismálið.
Það fer hins vegar einnig eftir vefnaði samfellnanna hversu þétt aðhald þær veita og má nefna að Evelin og Donna eru örlítið þéttari í sér en t.d Diana
Fyrir þær samfellur sem hafa ermar skal tekið fram að ermar hafa það góða teygju að þær þrengja ekki að.
Samfellurnar eru allar með g-streng og krækjum og er ýmist hægt að smeygja strengnum yfir sokkabuxur eða annan nærfatnað, eða nota aðeins strenginn.
Það er okkur mikil ánægja að geta boðið þessa vöru núna á Íslandi. Við þiggjum jafnframt ábendingar og mat ykkar á vörunni til
femmdor@femmdor.com